Hringbraut og Spyr.is hafa gert samning við fyrirtækið Tölvísi sem nú vinnur að því að byggja upp viðhorfahóp á Íslandi. Þar er ætlunin að greiða fólki fyrir þáttöku í könnunum, en Tölvísi er hluti af alþjóðlegu umsjónarkerfi viðhorfahópa að nafni Cint. Cint er með höfuðstöðvar í Stokkhólmi og er með í sinni umsjón yfir 1.500 viðhorfahópa með 19 milljónum meðlima í yfir 65 löndum. Ein sérstaða Cint er að þar er greitt fyrir hverja könnun sem meðlimir taka þátt í.
Að sögn Sverris Agnarssonar, framkvæmdastjóra Tölvísi, er fyrsta skrefið hins vegar að byggja upp þann viðhorfahóp sem síðar mun svara þessum könnunum. Hluti af samstarfi við Tölvísi, er verðlaunapottur sem dregið verður úr í lok mars. Þá mun einn nýskráðra í viðhorfshóp, vinna sér inn 200 þúsund króna inneign á kreditkorti frá iKorti. Við hvetjum lesendur til að taka þátt og skrá sig með því að smella HÉR eða á meðfylgjandi mynd. Síðar meir er ætlunin að virkja lesendur, áhorfendur og hlustendur Hringbrautar til að búa til spurningar, sem notaðar verða í könnunum hjá Tölvísi.
Smelltu HÉR til að skrá þig, eða á myndina hér að neðan.