Vilhjálmur varpar sprengju: Segir Seðlabankann vera að rústa íslenskum heimilum

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, er allt annað en sáttur við stýrivaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var um í morgun. Stýrivextir hækkuðu um 1 prósent og eru þeir nú orðnir 7,5%.

Vilhjálmur segir í færslu á Facebook-síðu sinni að það sé orðið hvellskýrt að allar forsendur kjarasamninga séu kolbrostnar, enda hafi það verið mat samningsaðila að kjarasamningarnir væru að stuðla að lækkun vaxta.

„Rétt er að geta þess að frá því gengið var frá kjarasamningum 3. desember 2022 hafa vextir Seðlabankans hækkað um 1,75% og standa nú í 7,5%. Það er orðið ljóst að Seðlabankanum mun á endanum takast að rústa íslenskum heimilum og þurrka upp alla aukningu á ráðstöfunartekjum heimilanna sem náðst hefur í kjarasamningum liðinna ára með þessari eyðileggingar-herferðar stefnu sinni.“

Eins og skýstrókur á heimilin

Hann segir að við þurfum að hafa það hugfast að þessar vaxtahækkanir virki ekkert öðruvísi en skýstrókur sem sogar burt allt ráðstöfunarfé heimilanna og færir til fjármagnseigenda og bankastofnana. Þannig virki vaxtahækkanir, þær færi fé frá skuldsettum heimilum yfir til fjármálakerfisins.

„Þau heimili sem eru með breytilega húsnæðisvexti hafa strax fundið fyrir þessum vaxtahækkunum á liðnum misserum og nemur sú hækkun á vaxtabyrði tugum þúsunda ef ekki vel á annað hundrað þúsund á mánuði.“

Vilhjálmur hefur líka áhyggjur af því sem kann að gerast þegar vextir á lánum heimila, sem notið hafa góðs af hagstæðum og tiltölulega lágum föstum vöxtum, byrja að hækka.

„Við skulum heldur ekki gleyma þeirri snjóhengju sem mun skella á þeim heimilum á næstu mánuðum sem eru með fasta vexti en þessi lánastabbi nemur um 630 milljörðum. En vaxtaendurskoðun mun koma til framkvæmda af fullum þunga á þessu ári og því næsta þar sem vaxtabyrði mun aukast gríðarlega með skelfilegum afleiðingum fyrir heimili þessa lands.“

Ofboðsleg skaðsemi verðtryggingar

Vilhjálmur bætir svo um betur og segir að við þessar vaxtahækkanir komi í ljós, svo ekki verður um villst, hin ofboðslega skaðsemi verðtryggingarinnar. Ljóst sé að viðskiptabankarnir muni vísa öllum lántökum sem ekki geta staðið skil á óverðtryggðum lánakjörum yfir í verðtryggð húsnæðislán.

„Með öðrum orðum Seðlabankinn myndi ekki geta hækkað stýrivextina svona mikið nema vegna þess að verðtryggð lán eru í boði. Málið er að greiðslugeta og greiðsluþol heimilanna er takmörkunum háð og þeir myndu aldrei hækka vextina svona mikið nema vegna þess að þeir vita að bankakerfið mun vísa öllum sem ekki geta greitt af óverðtryggðum lánum yfir í verðtryggð lán.“

Vilhjálmur segir það grátbroslegt, í ljósi þess að þetta er 12. stýrivaxtahækkun Seðlabankans, að hlusta á rökstuðning bankans fyrir þessum miklu hækkunum. Hann sé síbreytilegur og haldi oft á tíðum ekki vatni.

„Hinsvegar er aðalmálið eins og hefur komið fram hjá Seðlabankanum að það sé „ekki hægt“ að vera með neikvæða raunvexti. Á mannamáli þýðir það að enn og aftur slær Seðlabankinn skjaldborg utan um fjármagnseigendur og fjármálaöflin á kostnað almennings. Það er sorgleg staðreynd enda hefur sagan í fortíð og nútíð sýnt okkur að Seðlabankinn og stjórnvöld eru ætíð tilbúin að slá skjaldborg utan um fjármálakerfið á kostnað almennings.

Það er ekki bara að greiðslubyrði húsnæðislána sé að hækka gríðarlega heldur hefur allt annað hækkað mikið á liðnum misserum. Matvara, tryggingar, dagvistunargjöld, bifreiðagjöld, fasteignaskattar og svona mætti lengi telja.“

Vilhjálmur segir að lokum að það sé sorglegt að sjá hvernig Seðlabankinn slátrar þeim ávinningi sem stefnt var að því að ná í síðasta kjarasamningi.

„Því er það mitt persónulega mat að verkalýðshreyfingin eigi að slíta öllum viðræðum við Samtök atvinnulífsins sem eru komnar af stað enda tilgangslaust að vinna að langtímasamningi á sama tíma og allir varpa kostnaðarhækkunum á herðar launafólks, neytenda og heimila. Nú er nóg orðið nóg í mínum huga!“