Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, er allt annað en sáttur við frumvarpið fjármálaráðherra um lífeyrismál. Hafa Vilhjálmur og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, boðað málaferli gagnvart ASÍ og Samtökum atvinnulífsins.
Vilhjálmur bendir á það á Facebook-síðu sinni að ein breytingin var að launafólk myndi byrja að greiða í lífeyrissjóði 18 ára í stað 16 ára.
„Þetta þýðir sparnað fyrir atvinnulífið upp á tæpar 800 milljónir á ári. Hugsið ykkur það á að taka 800 milljónir af unga fólkinu og færa yfir til atvinnurekenda. Ekkert mál að fresta greiðslum í lífeyrissjóði úr 16 árum í 18 ár en látið þá unga fólkið fá þessar 800 milljónir annaðhvort í formi 11,5% launahækkunar eða sem inneign í séreigna sjóði. Ekki „stela“ 800 milljónum af unga fólkinu á ári með því að lauma svona frumvarpi í gegn!“
Vilhjálmur bendir svo á annað atriði í frumvarpinu sem hann gagnrýnir harðlega. Þannig er ekki gert lengur ráð fyrir að verðbætur komi á lífeyrinn í hverjum mánuði eins og nú er, heldur einu sinni á ári.
„Þetta þýðir að einstaklingur sem er 67 ára og er með 350 þúsund í lífeyrir verður af verðbótum sem nema tæpum 70 þúsundum á ári miðað við 4% verðbólgu. Frá 67 ára töku lífeyris til 83 ára aldurs væri búið að hafa af þessum lífeyrisþega rétt tæpar 2 milljónir króna!“
Vilhjálmur er allt annað en sáttur við þetta.
„Ekki lauma fram frumvarpi sem „stelur“ af lífeyrisþegum 2 milljónum af lífeyri þeirra með þessum breytingum á 16 ára tímabili á töku lífeyris. Væri fróðlegt að vita sparnað lífeyrissjóðanna ef þessi breyting færi í gegn. Ugglaust er um marga milljarða um að ræða!
Við launafólk vil ég segja, stöndum vörð um réttindi okkar!“