Vilhjálmur bendir á ótrúlega hræsni á fundi Samtaka atvinnulífsins í gær

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að mikil flugeldasýning hafi verið á ársfundi Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í Hörpu í gær. Eins og kannski gefur að skilja var íslenskri verkalýðshreyfingu fundið flest til foráttu á fundinum.

„Á þessum fundi var öskrað á stjórnvöld um mikilvægi þess að breyta vinnulöggjöfinni og var ekki annað að skilja en að breyta þyrfti henni til að veikja og þrengja að starfsemi stéttarfélaganna. Það var hins vegar grátbroslegt þegar Samtök atvinnulífsins töluðu um og vörpuðu glæru upp sem bar heitið „Stöðvum höfrungahlaupið,“ segir Vilhjálmur.

Hann bendir á að sannleikurinn sé sá að fjölmargir þeirra sem sátu ársfund Samtaka atvinnulífsins í gær séu nánast þeir einu sem fóru ekki eftir því sem samið var um í lífskjarasamningum.

„Við sömdum um 90.000 kr. í fjögurra ára samningi handa þeim sem tóku laun eftir kauptöxtum og 60.000 kr. handa þeim sem voru ekki að taka laun eftir kauptöxtum.“

Vilhjálmur nefnir svo nokkur dæmi um launahækkanir frá árinu 2021 til handa stjórnendum fyrirtækja sem eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins:

  • Forstjóri Icelandair hækkaði um 1,8 milljón á mánuði
  • Forstjóri Síldarvinnslunnar hækkaði um 833 þúsund á mánuði
  • Forstjóri Símans hækkaði um 800 þúsund á mánuði
  • Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur hækkaði um 600 þúsund á mánuði
  • Forstjóri Eimskips hækkaði um 500 þúsund á mánuði
  • Forstjórar 20 félaga í Kauphöllinni hækkuðu að meðaltali um 444 þúsund á mánuði í fyrra

Hann nefnir svo að verkafólk, iðnaðarmenn og verslunarfólk sem tekur laun eftir kauptöxtum hafi hækkað um 24 þúsund á mánuði á sama tíma og þeir sem ekki tóku laun eftir töxtum hækkuðu um 18.000 krónur.

„Hefði nú ekki verið nær hjá Samtökum atvinnulífsins að biðja þá sem sátu fundinn að fara eftir þeim launahækkunum sem það krefur sína eigin starfsmenn um að fara eftir. Það eru ekki félagsmenn ASÍ sem ástunduðu höfrungahlaup í síðustu kjarasamningum heldur fjölmargir af æðstu stjórnendum íslenskra fyrirtækja.“

Vilhjálmur segir einnig að í ljósi þess að það voru þingmenn og ráðherrar sem sátu þennan ársfund og hlustuðu á þennan boðskap frá SA þar sem talað var um höfrungahlaup og að setja þyrfti bönd á verkalýðshreyfinguna með hertri vinnulöggjöf þá sé rétt að rifja upp hvort þeir hafi tekið sömu launabreytingum og lífskjarasamningurinn kvað á um.

„Eins og áður sagði þá var samið um að laun hjá félagsmönnum ASÍ sem taka laun eftir kauptöxtum skyldu hækka um 90.000 kr. frá árinu 2019 til október 2022 eða sem nemur 22.500 kr. að jafnaði á ári. Þeir sem ekki tóku laun eftir lægstu kauptöxtum fengu 60.000 kr. eða sem nemur að jafnaði 15.000 kr. Til upprifjunar þá hafa laun þingmanna hækkað um 244.000 kr. á mánuði og laun ráðherra hafa hækkað um 447.000 kr. frá árinu 2019 en ekki 90.000 eða 60.000 kr. eins og samið var um í lífskjarasamningum. Já, hræsnin á þessum fundi hjá Samtökum atvinnulífsins ríður vart við einteyming!“