„Þetta er langt frá því að vera það sem við áttum von á,“ segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarna um smittölur dagsins í samtali við Fréttablaðið.
56 smit greindust innanlands í dag. Víðir segir þetta gríðarlega háar tölur. „Það er ekkert sem stoppar þessa útbreiðslu, það eru engar takmarkanir í gangi og bólusetningarnar eins og við sjáum virka bara að hluta til. Meðan að þetta er svona má búast við þessum tölum áfram,“ segir Víðir.
Vegna Verslunarmannahelgarinnar segir Víðir að menn þurfi að hugsa sinn gang og fara varlega.
„Við vitum alveg hvað það er sem gagnast vel, að fólk passi sig og sé ekki að hittast í of stórum hópum og annað slíkt. Það er það sem hefur gagnast vel í baráttunni hingað til. Það er bara það sem menn þurfa að hafa í huga núna, hvernig þeir hegða sér og hvað menn gera, það er það sem skiptir öllu máli í þessu.“
Viðtal Fréttablaðsins við Víði Reynisson um stöðuna í faraldrinum.