Víðir er með COVID-19

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra hefur greinst með COVID-19. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Smit kom upp í nærumhverfi hans síðdegis á mánudag og í kjölfarið fór hann í sóttkví en jafnframt fór hann og hans nánasta samstarfsfólk auk Ölmu Möller, landlæknis og Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis í sýnatöku. Sýni þeirra allra reyndust neikvæð á mánudagskvöld.

Víðir fór aftur í sýnatöku í dag og reyndist sýni frá honum jákvætt. Hann finnur ekki fyrir einkennum og er kominn í einangrun. Í ljósi þess að sýni frá Víði reyndist neikvætt á mánudag þykir ekki ástæða til þess að hans nánasta samstarfsfólk fari í sóttkví.