Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hefur staðið í ströngu síðan Covid-faraldurinn hófst hér á landi snemma á síðasta ári. Hann átti miða á þjóðhátíð og var að vonum fúll þegar henni var aflýst. Hann hyggst sinna garðverkum, spila golf og vinna dáldítið um helgina fyrst engin þjóðhátíð verður.
„Ég ætla að vera heima við bara og vonast til að geta dundað í garðinum. Ég ætla að spila eitthvað golf líka og svo verð ég að vinna. Það er svona það sem verður um helgina,“ segir Víðir í samtali við Fréttablaðið.
Hér má lesa viðtal Fréttablaðsins við Víði í heild sinni.
Hann segist ekki vera kvíðinn fyrir helginni, þegar metfjöldi smita greinist dag eftir dag. „Nei í sjálfu sér ekki, ég held við munum öll taka þetta skynsamlega og förum bara varlega meðan við erum að vinna í þessari óvissu,“ segir Víðir. Verkefnið núna sé að ná utan um alvarleikann í þessari bylgju.