Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hvatti landsmenn alla til persónulegrar ábyrgðar á upplýsingafundi almannavarna í dag.
Hann segir óvissuna mikla og það vera gríðarlega mikilvægt að halda því til haga að við verðum tilbúin að takast á við aðra bylgju faraldursins.
Hann segir að nú verði hver og einn að að taka ábyrgð, virða þá sem vilja halda fjarlægð og að stunda handþvott og sprittun.
Þeir sem ætli sér að fara á staði þar sem sóttvörnum sé ábótavant eða það stefni í mannfjölda stærri en 500 að sýna ábyrgð og fara ekki. Ekki sé hægt að bregðast öðruvísi við faraldrinum en með skynsemi og samstöðu og að fylgja þeim einföldu reglum sem allir þekki nú.
Það verður ekki öðruvísu brugðist við faraldrinum núna en með skynsemi og samstöðu og með því að fylgja þeim einföldu reglum sem allir ættu að þekkja."
„Þá tekst okkur að ná utan um þetta,“ segir Víðir og hvetur fólk til að sýna ábyrgð, hvert og eitt.