„Við leyfðum þessu að gerast á okkar vakt!“

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri, hvetur alla til að líta í eigin barm vegna brunans í Vesturbænum í gær.

„Húsnæðið var sagt brunagildra af slökkviliðsstjóra og verkalýðsfélagið Efling ku hafa kvartað undan aðbúnaði starfsmanna ítrekað. Undrunaralda gengur nú um samfélagið og fólk spyr sig hvernig svona nokkuð getur gerst. Það er mjög eðlilegt enda er þetta bæði óskiljanlegt og afar sorglegt mál. Fólk er reitt og vill draga fólk til ábyrgðar. Það er líka eðlilegt og sjálfsagt. En við ættum líka öll sem eitt að setjast niður og horfa í eigin barm. Hvernig má það vera að hópur manna býr við allt önnur kjör og aðstæður en þorri fólks?,“ spyr Grímur í grein á vef Vísis.

Hann segir vandann liggja í því að fólk horfi í hina áttina.

„Fyrir 20 árum vann ég um þriggja ára skeið hjá Félagsþjónustu Reykjavíkur. Á þeim tíma rakst ég á húsnæði hvar margir af þeim notendum þjónustunnar, sem ég veitti áttu, lögheimili. Það kom mér á óvart enda voru þeir flestir heimilislausir eða eins og það hét þá „óstaðsettir í hús“.“

Fór hann að grennslast fyrir um þetta og komst að því að stórtækur braskari gerði leigusamninga við heimilislausa sem þeir síðan fóru með til félagsþjónustunnar og fengu fyrirframgreidda aðstoð við leigu til þriggja mánaða, sem þá var veitt til að komast í húsnæði, auk húsaleigubóta. „Peningunum var síðan skipt á milli „leigjandans“ og „leigusalans“ – leigjandinn hélt áfram að vera heimilislaus. Það eru tæp 20 ár síðan þetta komst upp og gallar kerfisins blöstu við. Hvers vegna eru þá í dag 73 erlendir farandverkamenn með sama lögheimili og í brunagildru í ofanálag? Svar mitt: Við erum of upptekin við að horfa í hina áttina.“

Slík mál hafa komið upp ítrekað síðustu ár og áratugi, slíkar fréttir séu svo gleymdar viku síðar. „Ef við viljum raunverulega breyta einhverju þurfum við öll að taka ábyrgð. Horfast í augu við það að mörgþúsund störf eru svo illa borguð á Íslandi að þeim er sinnt af farandverkamönnum sem fæst okkar eigum nokkurt samneyti við. Starfsmannaleigur eru margar og margskonar en sumar þeirra virðast geta komist upp með það ítrekað að fótumtroða réttindi verkamanna sinna. Stöndum í lappirnar og segjum mismunun stríð á hendur. Sættum okkur ekki við að fólk borgi 100.000 kr. fyrir gluggalaus herbergi í mygluhjöllum. Það gerum við með því að gangast við ábyrgð okkar sem er að við leyfðum þessu að gerast á okkar vakt!“