Furðu vekur sú skýring starfsmanna verðbréfafyrirtækja að ástæðan fyrir lækkun hlutabréfa framan af þessari viku hafi verið sú að markaðurinn óttaðist vinstri stjórn en skoðanakannanir hafa sýnt að núverandi stjórn sé kolfallin. Valdimar Ármann lýsti þessari skoðun sinni í viðtali við Fréttablaðið sem birtist í dag. Svo virðist að menn hafi ekki munað eftir því að nú er við völd á Íslandi vinstri stjórn Katrínar Jakobsdóttur formanns sósíalistaflokksins Vinstri græn. Það ætti því ekki að hafa áhrif á hlutabréfamarkaðinn þó þessi vinstri stjórn félli og önnur kæmi í staðinn. Markaðurinn ætti frekar að fagna því ef núverandi vinstri stjórn fer frá því í staðinn gæti komið miðjustjórn eða miðju-hægri stjórn.
Náttfari gerir þetta að umtalsefni en í dag hækkuðu öll hlutabréf á Kauphöll Íslands að nýju:https://hringbraut.frettabladid.is/frettir-pistlar/verdbrefaguttar-i-politik/