Vera skilar skömminni: „Ég var starfsnemi og hann var sendiherra“

Vera Knútsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna, hefur opnað sig um reynslu sem hún varð fyrir af hálfu manns sem gegndi embætti sendiherra.

„Égg var starfsnemi og hann var sendiherra. Í starfsmannapartíi tróð hann tungunni í kokið á mér. Dró mig afsíðis og hélt mér fast til að kyssa mig,“ segir hún á Twitter.

Þetta er í fyrsta sinn sem hún opnar sig um atvikið:

„Hef aldrei opnað mig um þetta áður því ég var með svo mikið samviskubit yfir því að hafa sent villandi skilaboð.“

Skilar hún nú skömminni og notar til þess myllumerkið #Metoo:

„Vildi líka ekki koma honum í vandræði og fá á mig stimpil sem drusla. Ég hef aldrei getað horft framan í hann aftur.“