Ver ketti á Akureyri: Vonar að fólk fái að „eiga sína ketti í friði"

Kattareigandinn og Akureyringurinn Þorsteinn Pétursson skrifaði nýlega grein til varnar köttum í Vikublaðið. Þar gagnrýnir hann meðal annars fréttaflutning Ríkisútvarpsins umkattahald á Akureyri:

„Fyrir nokkru kom í Ríkissjónvarpinu all ítarleg frétt og viðtal um lausagöngu katta á Akureyri. Fréttin hófst á kynningu, „Akureyringar eru orðnir langþreyttir á lausagöngu katta í bænum“. Þar sem ég er Akureyringur í húð og hár og kattaeigandi lagði ég við hlustir,“ segir Þorsteinn.

„Vitnað var í Akureyringa eins og búið væri að ræða við þá alla og þarna væri því samróma álit þeirra. Ég kannaðist ekki við að hafa verið spurður álits sem Akureyringur, sem og enginn þeirra fjölmörgu sem ég ræddi við og eru í sömu sporum og ég.“

Hann segir að á sínu heimili hafi oftar en ekki verið kisi, heimilinu til mikillar gleði enda veiti kettir ákveðinn félagsskap. „ Í fréttinni kom síðan viðtal við konu og myndir frá heimili hennar sem segist ítrekað fá óumbeðnar heimsóknir katta sem koma þar inn um glugga. Fram kom að hún hafði verið að heiman og komið að heldur óskemmtilegum viðskilnaði kattarins sem auðvitað hafi talið, þar sem glugginn og aðgengið væri jafn gott og vanalega, að hann væri velkominn og notfært sér það,“ segir Þorsteinn.

„Þá sýndi konan kattaskít í poka sem hún sagðist hafa verkað upp úr fallegum sófa. Auðvitað er það hvimleitt ef kettir t.d. míga á þröskulda hjá fólki en auðvelt er að vinna gegn því,“ heldur hann áfram. „Einnig að venja ókunna ketti að gera sig heimakomna. Konan sem viðtalið var við hefði átt ef hún vildi ekki að þessi gestur kæmi inn að minnka rifuna á glugganum eða eins og ég þekki til, setja netgrind en samt geta haft gluggann opinn.“

Þá segist Þorsteinn telja að veiðar katta á fuglum komist ekki í hálfkvisti við veiðar hrafna og máva sem gjarnan ná sér í „grillmat á svölum“. „Þar skíta þeir gjarnan í kveðjuskyni.“

„Ég vona að ekki verði farið á öfgafullan hátt í baráttu gegn þeirri hefð að fólk fái að eiga sína ketti í friði og þeir fái frjálsa útivist. Flestir eru komnir með kattalúgu þar sem þeir einir ganga um. Hægt er að læsa þeim, t.d. yfir nóttina eða þann tíma á vorin þegar ungar eru ófleygir. Ég er borinn og barnfæddur Akureyringur og gæti trúað að margir séu mér sammála,“ segir hann loks.