Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir að vísindin séu tekin fram fyrir pólitíkina þessar vikurnar og þannig verði það áfram. Öll áherslan sé að aðgerðir til að stemma við útbreiðslu Covid – 19.
Mánuður er síðan að eldraun stjórnvalda í heilbrigðismálum hófst. Við erum í miðju stríði við veirufaraldurinn - hinn ósynilega vágest.
Aðspurð í þættinum 21 í kvöld, hvort Svandís hafi alfarið stuðst við ráðleggingar sóttvarnarlæknis eða einhvern tímann brugðið út frá þeim, segir Svandís að hún fari í einu og öllu eftir sóttvarnarlækni þegar hún tekur ákvarðanir um t.d. samkomubönn.
Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur gagnrýnt samráðsleysi og lagt til sínar tillögur vegna aðgerða sem hún telur þörf á vegna stöðunnar í faraldrinum.
Svandís segir pólitík hafa á íslandi vikið fyrir vísindunum. „Ég hef litið á það sem styrkleika okkar hér á Íslandi að við förum að ráði okkar besta fólks, það að eiga við svona faraldur er fyrst og fremst vísindalegt og læknisfræðilegt verkefni“
„Það eru fjölmargar ákvarðanir teknar á hverjum degi og auðvitað er ég í stöðugum samskiptum við sóttvarnarlækni og Landlækni, ég heyri í þeím oft á dag, ég fylgist líka með morgunfundunum sem haldnir eru klukkan níu með öllum heilbrigðisstofnunum í landinu“, segir Svandís.
Hún segir að það sé þó rökrætt um næstu skref meðal sérfræðinganna og sín.
„En ábyrgðin er mín og niðurstaðan er mín“.
Svandís segir sérfræðinga vinna áætlanir miðað við tölur og spágöng frá degi til dags, en meginmarkmiðið hjá yfirvöldum sé að halda „kúrfunni niðri“ í þróun veikinnar til að ofgera ekki heilbrigðiskerfinu. „Spárnar eru að rætast nokkuð vel hvað varðar fjölda greindra en við erum ofarlega í fjölda þeirra sem fara á spítala“.