Ný tilraun Bónus til að höfða til veiðimanna virðist ekki hafa heppnast alveg eins vel og hugsast gat. Í nýrri auglýsingu sem verslunin deilir á Facebook eru veiðimenn hvattir til að taka með sér tilbúnar Bónus-súpur með í veiðina.
„Ímissandi í veiðina,“ segir á mynd frá Bónus þar sem sýndar eru þrjár tegundir af tilbúnum súpum; baunasúpa og saltkjöt, íslensk kjötsúpa og mexíkósk kjúklingasúpa. Á bak við vörurnar er svo glæsileg mynd af neðri hluta stangar og hjóli hennar. Eitthvað virðist sú mynd hafa stungið í augun á nokkrum reyndum og glöggum veiðimönnum ef marka má umræður um auglýsinguna á hópi veiðimanna á Facebook Veiðidellan er frábær.
„Það er eitthvað athugavert við auglýsinguna... Sjáiði villuna?“ spyr meðlimur hópsins og deilir mynd af auglýsingu Bónus.
Svo virðist sem Bónusmönnum hafi tekist að setja fluguhjól á kaststöng og stilla henni upp fyrir myndina, en eins og veiðimenn yrðu slík tól helst til erfiðar til brúks við bakkann. „Smáatriðin skipta öllu máli þegar kemur að því að gera gæða auglýsingu og Bónus menn spara engu til ..“ segir einn. „Tja, þetta gæti verið tvíhenda,“ segir annar þá en er svarað „held það sé enginn sigurvegari með þetta set up hvort sem er.“
„Þetta er greinilega meingölluð auglýsing... ég tók bara eftir stangarsamsetningunni,“ segir einn og spyr annar sig hvers vegna hann hafi aldrei átt svona græjur í mikilli kaldhæðni.