„Ég horfði ekki á þennan handboltaleik. Ég var að þrífa. Mér líður eins og þjóðníðingi,“ skrifaði Anna Sigrún Baldursdóttir framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítalans á Facebook eftir afrek íslenska landsliðsin í handbolta á Evrópumótinu í Búdapest í gær.
Fjölmargir gerðu athugasemdir við þetta framferði Önnu Sigrúnar og fordæmdu það.
Aðrir játuðu þó að hafa gerst sekir um svipaða háttsemi. Þannig var Jóhannes Þór Skúlason að mála á meðan strákarnir okkar sigruðu sína stærstu orustu á mótinu, en hann fullyrti þó að hann hafi horft á leikinn eftir á og hrifist af.
Nokkrir þáttakendur í umræðunni játuðu einnig að þeir geti aldrei horft á landsliðið spila á stórmótum nema markamunurinn sé 10 mörk að lágmarki. Spennan í þessari íþróttagrein sé hreinlega óbærileg.