„Skuldir hafa hækkað jafnt og þétt síðustu tíu ár og nú er svo komið að hver og einn Reykvíkingur skuldar 902.156 krónur,“ segir Valgerður Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Valgerður vísar þar í úttekt sem birtist í Markaðnum fyrir skemmstu þar sem fram kom að heildarskuldbindingar A-hluta Reykjavíkurborgar hafi numið ríflega 118 milljörðum króna um mitt ár 2020. Hafa skuldir á hvern borgarbúa meira en tvöfaldast á síðustu tíu árum ef miðað er við verðlag hvers árs.
„Það er undravert þegar skuldastaða borgarinnar er skoðuð að heyra meirihlutann tala um að þessi gríðarlega slæma skuldastaða komi til út af Covid. Hér er tíu ára uppsafnaður vandi sem er byrjaður að bíta fast,“ segir Valgerður meðal annars og bætir við að síðustu tíu ár hafi ríkt óráðsía í fjármálum borgarinnar. Peningum hafi verið eytt hraðar en þeir hafa komið inn.
„Það er merkilegt, þar sem sögulegt tekjugóðæri hefur verið. Það sjá það allir að vandinn er gríðarlegur og hann varð ekki til á nokkrum mánuðum líkt og meirihlutinn heldur núna fram. Vissulega hefur Covid áhrif á stöðuna en því miður var Reykjavíkurborg það illa rekið sveitarfélag fyrir að búið var að senda ósk um neyðaraðstoð til ríkisins strax á vordögum, enda augljóst að fjárhagsleg óstjórn hefur verið í sveitarfélaginu um langt skeið,“ segir Valgerður meðal annars.