Valdimar gerði hrikaleg mistök í sturtunni

Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson segir að desemberstressið sé strax farið að ná til hans, jafnvel þó enn sé nóvember.

Eins og þeir sem þekkja Valdimar vita er hann mikill húmoristi og slær hann jafnan á létta strengi á Twitter. Í færslu sem hann skrifaði á föstudag segir hann frá ákveðnum mistökum sem hann gerði í sturtunni heima hjá sér.

„Desemberstressið er strax farið að ná til mín held ég. Tókst allavega að þvo óvart á mér hárið með hundasjampói í morgun.“

Valdimar ætti ekki að þurfa að hafa áhyggjur af þessu ef marka má athugasemd sem birtist undir færslu hans.

„Verandi umkringd hundasnyrtum og hunda fólki er það víst bara í finu lagi. Vinkona mín notaði hundasjampó í 2 vikur því hún fann ekki vanalega sjampóið í búðum, eða eins og þau segja: nota hundasjampó í fólk en alls ekki mannasjampó í hunda.“