Uppskrift: Hollustuhrökkbrauð að hætti Berglindar Hreiðars sem þú verður að prófa

Nú er janúar liðinn og nýr hollustumánuður tekinn við, þar til bolluátið hefst ásamt tilheyrandi dögum, sprengidegi og öskudegi.  Það er um að gera að njóta ljúffengrar hollustu þangað til.  Berglind Hreiðarsdóttir, matar- og sælkerabloggari, sú besta í kökubakstri og skreytingum gerði þessi hollustu hrökkbrauð sem bragðast hrikaleg vel og avókadó smellpassar á hrökkbrauðinni.  Berglindi er margt til lista lagt þegar bakstur og matargerð er annars vegar.  Sunnudagar henta einstaklega vel til bakstur og gott að nýta tækifæri og undirbúa hollustu bitana fyrir vikuna.

Hér kemur uppskriftin ljúfa frá Berglindi.

Hollustuhrökkbrauð uppskrift

60 g Til hamingju sólblómafræ

50 g Til hamingju sesamfræ

60 g Til hamingju hörfræ

40 g Til hamingju graskersfræ

50 g Maizenamjöl

50 ml matarolía

150 ml sjóðandi vatn

½ tsk. salt og gróft salt til að strá yfir í lokin.

  1. Setjið öll fræin ásamt maizenamjöli saman í skál og blandið saman.
  2. Hellið sjóðandi vatni, maizenamjöli og salti saman við og hrærið vel, leyfið að standa í 10 mínútur og hrærið nokkrum sinnum í á meðan.
  3. Hellið blöndunni í ofnskúffu íklædda bökunarpappír og dreifið vel úr með spaða þar til þunnt lag myndast (blandan þekur tæplega eina skúffu).
  4. Stráið smá grófu salti yfir áður en þið bakið við 150°C í klukkustund.
  5. Leyfið hrökkbrauðinu að kólna í ofninum í um 15 mínútur eftir að slökkt hefur verið á honum og takið þá út og leyfið að standa á borðinu aðrar 15 mínútur.
  6. Nú má brjóta það í hæfilega stóra bita, leggja á eldhúspappír og leyfa að harðna vel og kólna áður en því er pakkað vel inn/sett í geymslubox.

„Það tekur enga stund að hræra í þetta og síðan er bara að stilla klukkuna á símanum á eina klukkustund og gera eitthvað annað sniðugt á meðan,“ segir Berglind sem býr yfir óþrjótandi úrvali að ljúffengum uppskriftum af hinum ýmsu kræsingum.

Njótið vel.