Tvö ung börn örmagna við gosstöðvarnar: „Við reynum að segja við fólk í hvaða aðstæður það er að fara út í“

Eld­gosið er mallandi þarna upp frá. Það rignir smá, en annars hefur enginn farið þarna upp í dag,“ segir Steinar Þór Kristins­son, svæðis­stjóri al­manna­varna um stöðuna á eld­gosinu í Mera­dölum, en lokað hefur verið að gos­stöðvunum í allan dag. Fréttablaðið greindi frá.

Hann segir að gær­kvöldið hafi að mestu gengið vel. „Í gær gekk bara ó­trú­lega vel. Það var eitt­hvað álag þarna hjá okkur seint í gær­kvöldi, fólk að mæta sem var orðið lúið,“ segir Steinar, en upp kom í gær að fólk var að mæta með of ung börn sem urðu ör­magna á leiðinni.

„Fólk er að mæta með of ung börn, það er það sem við erum að horfa upp á. Við reynum að segja við fólk í hvaða að­stæður það er að fara út í og mæla með að gera það ekki ef það er ekki til­búið í það. Við getum svo sem ekki bannað fólki að fara, en það tekur yfir­leitt vel í það sem við höfum að segja. Það er bara allur gangur á þessu,“ segir Steinar.

Al­manna­varna­deild ríkis­lög­reglu­stjóra hefur tekið á­kvörðun um að á­fram verði lokað inn á gossvæðið að Meradölum og verður staðan endur­metin eftir stöðu­fund í fyrra­málið.

Kemur þetta fram í til­kynningu frá lög­reglunni á Suður­nesjum, en í gær var tekin á­kvörðun um að gossvæðið yrði lokað klukkan fimm í morgun að sökum veðurs. Veður­stofa hafði lýst yfir gulri við­vörun á svæðinu.

Hægt er að lesa meira hér.

Fleiri fréttir