Tveir á sjúkrahúsi: Yfir 20 COVID-tilfelli greindust í gær

Alls greindist 21 CO­VID-19 smit hér á landi í gær sam­­kvæmt tölum sem birtar voru á vefnum CO­VID.is nú klukkan 11. Að­eins sjö ein­staklingar voru í sótt­kví við greiningu.

Smitum hefur fjölgað tölu­vert undan­farna daga, en í gær­morgun var greint frá því að 19 smit hefðu greinst á mið­viku­­dag. Þá greindust þrettán smit á þriðju­­dag. Hefur far­aldurinn sótt í sig veðrið og er fjöldi dag­­legra smita nú á pari við fjölda dag­­legra til­­­fella í apríl­­mánuði.

Síðustu þrjá daga hafa 43 smit greinst hér á landi.

Alls hafa 2.230 smit greinst hér á landi og eru 108 ein­staklingar nú í ein­angrun. Tveir ein­staklingar eru á sjúkra­húsi með CO­VID-19.