Fjáröflun SÁÁ til að efla sálfræðiþjónustu fyrir börn hófst í dag. Samtökin veita börnum á bilinu 8 til 18 ára sem eiga foreldri sem glímir við áfengis- og eða vímuefnavanda.
Ingunn Hansdóttir, yfirsálfræðingur SÁÁ og Einar Hermannsson, formaður SÁÁ mæta í þáttinn 21 á Hringbraut til Lindu Blöndal í kvöld, þriðjudag.
Þar kemur fram að börn í slíkum aðstæðum búi á bilinu fjögur til fimm heimilum á landinu.
SÁÁ hefur um árabil veitt þessa þjónustu og sinna tveir sálfræðingar henni. Markmið þjónustunnar er að hjálpa börnunum til að takast á við algengustu vandamál sem þau glíma við í aðstæðum sínum. Þar á meðal er tilfinningavandi sem sýnir sig í reiði, depurð, kvíða, þunglyndi, höfnunartilfinningu, sektarkennd, skömm, stjórnleysi á eigin tilfinningum og neikvæðri sjálfsmynd. Þá er mun líklegra að þessi börn búi við heimilisofbeldi eða vanrækslu.
Í rannsókn sérfræðihóps umboðsmanns barna kom skýrt fram að börnin telja mikla hjálp í þeirri fræðslu og stuðningi sem þau fá með sálfræðiþjónustu SÁÁ, í dag eru því miður 52 börn á bið. Þeim finnst erfitt að hugsa til þess hvernig líf þeirra væri ef fræðslan hefði ekki komið til. Þau hafa áttað sig á að þau séu ekki ein í þeirri stöðu að eiga aðstandanda sem glímir við fíknsjúkdóm.
SÁÁ kostar þessa sálfræðiaðstoð að stærstum hluta með sjálfsaflafé og nú er komið að því að afla þess fjár en um sautján milljónir vantar til að halda þjónustunni áfram.
Hægt er að styrkja sálfræðiþjónust barna á vef SÁÁ – www.saa.is