Tryllingslega góður humar tempura með chili mæjó

Hér er komin skothelt uppskrift af humar tempura með chili mæjó að hætti Berglindar Hreiðars matar- og sælkerabloggara á www.gotteri.is. Þessi er svo góður að þið eigið eftir að umla að gleði og ánægju meðan þið njótið. Eins og Berglind sagði: „Ég get ekki líst því hvað þetta var gott og drottinn minn, þetta verður sko gert hér reglulega í framtíðinni. Ég hef nokkrum sinnum pantað mér humar tempura á Sushi Social og ég var að reyna að leika þann rétt eftir, sem ég verð að segja að hafi bara tekist asskoti vel.“ Við getum vel mælt með þessum dýrindis rétti um helgina.

M&H Humar tempura.2jpg

Girnilegur humarinn með chili mæjó af bestu gerð. *Myndir Berglind Hreiðarsdóttir.

Humar tempura með chili mæjó

Orlydeig

  • 300 g hveiti
  • 1 ½ tsk. lyftiduft
  • 1 ½ tsk. salt
  • 330 ml Pilsner
  • 2 egg
  • 3 msk. ólífuolía
  1. Blandið öllum hráefnum saman í skál og pískið þar til jafningur hefur myndast, setjið í kæli á meðan annað er undirbúið en að minnsta kosti í 30 mínútur.

Humar – eldunaraðferð

  • Um 700 g skelflettur humar (fæst í næsta stórmarkaði, t.d. Bónus)
  • Salt, pipar og hvítlauksduft
  • Steikingarolía (um 700 ml)
  • spírur og ferskt kóríander, saxað, til skrauts
  1. Skolið og þerrið humarinn, kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti.
  2. Setjið hann ofan í orlydeigið og veltið um þar með sleif þar til allir bitar eru hjúpaðir deigi.
  3. Hitið steikingarolíuna þar til hún er vel heit og lækkið þá hitann niður í meðalháan hita. Gott er að prófa að setja smá orlydeig í pottinn til að gera „test“ og ef það fer strax að „bubbla“ vel er tímabært að lækka aðeins hitann og setja eins og 6-8 humarbita ofan í í einu í um 2 mínútur í senn eða þar til þeir verða gylltir (ég steikti á stillingu 7 af 9 hjá mér).
  4. Gott er að nota kleinuspaða eða annan götóttan spaða til að veiða bitana upp úr pottinum, hrista olíuna vel af og leggja á nokkur lög af eldhúspappír til að umfram olía leki af og bitarnir haldist stökkir.
  5. Þræðið bitana upp á tréprik eða setjið þá á bakka, sprautið chili majó yfir (og hafið auka slíkt í skál) og stráið vel af kóríander yfir og spírum ef þið viljið slíkar og gott er að kreista smá lime yfir allt í lokin.

Chili mæjó uppskrift

  • 230 g Hellmann‘s majónes
  • 2 msk. Sriracha sósa
  • 1 msk. limesafi
  1. Pískið allt saman í skál og kælið fram að notkun.

Berið fram á fallegan og aðlaðandi hátt og skreytið með spírum, söxuðu fersku kóríander og limesneiðum. Verið ykkur að góðu.