Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkarinnar, þykir Einar Þorsteinsson, þáttastjórnandi Kastljóss, hafa sýnt Kára Stefánssyni, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, ófaglega framkomu í þættinum í kvöld.
Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hún Kára hafa haft nokkuð til sín máls og ekki við hæfi þegar Einar sagði að Kári væri „alveg ruglaður."
Einar lét orðin falla rétt eftir að Kári sagðist hafa lokað fyrir símtöl frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni svo hann gæti ekki óskað eftir aðkomu Íslenskrar erfðagreiningar að skimun á Keflavíkurflugvelli.
„Slík ummæli eru ekki fagleg framkoma við viðmælanda, jafnvel þó að spyrlinum hafi fundist hann barnalegur (það fannst áreiðanlega fleirum),“ skrifar Ólína.
Einar svarar færslunni og segir að orðin hafi ekki hafa verið illa meint.
„Þetta missti ég út úr mér eftir að hann sagði að hann hefði blokkerað Þórólf. Sem er talsvert ruglað. Þetta var ekki illa meint enda tók Kári því ekki þannig."
Þá sagði hann hafa farið vel á með þeim tveimur eftir viðtalið.
Kallaði heilbrigðisráðherra tíu ára stelpu
Ummæli Kára Stefánssonar í Kastljósi kvöldsins hafa vægast sagt vakið athylgi en í þættinum lýsti hann yfir mikill óánægju sinni með framgöngu Svandísar Svavarsdóttir samgönguráðherra.
Kári segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við ráðherrann en hann er ósáttur við að ekki hafi verið haft samráð við Íslenska erfðagreiningu í undirbúningi fyrir opnun landamæra þann 15. júní.
Þá hrósaði hann Svandísi fyrir góð störf í gegnum tíðina en sagði hana um leið stundum hegða sér eins og „lítil tíu ára stelpa.“
Nánar má lesa um viðtalið hér á vef Fréttablaðsins.