Þórólfur segir fleiri endursmitast en nokkru sinni fyrr: „Við þurfum að vera á verði“

Þór­ólfur Guðna­son, sótt­varna­læknir, segir það nú vera að gerast oftar og oftar að fólk smitist aftur af kórónu­veirunni. Dæmi eru um að fólk sem hafi jafn­vel smitast tvisvar áður, smitist nú í þriðja skiptið með veiruna.Fréttablaðið fjallar um málið.

„Við sjáum að sér­stak­lega þeir sem smituðust í fyrsta sinn á árinu 2020 og 2021 þeir eru meira að endur­smitast núna, það er allt upp í 20 prósent af þeim sem fara í opin­ber próf, sér­stak­lega núna upp á síð­kastið.“

Þór­ólfur nefnir tvær mögulegar ástæður fyrir því að nú séu svona margir að smitast.

„Það getur bæði verið það að þessi af­brigði sem voru í gangi í fyrstu bylgju far­aldursins veiti ekki alveg nægi­lega góða vernd gagn­vart þessum nýju af­brigðum og svo líka hitt að það er liðinn meiri tími og við vitum að með tímanum dvínar ó­næmið og kannski er það sam­blanda af þessu sem veldur þessu.“

Þór­ólfur segir þó að endur­smitin seú ekki eins al­var­leg og fyrri smit, þannig að eftir því sem fólk smitast oftar ættu ein­kennin að vera vægari.

„Þannig að kannski mun fólk sem smitast aftur fá vægari kvef­ein­kenni. Það er hugsan­legt,“ segir Þórólfur. Hann segist þó vera slakur yfir nýjustu vendingum í far­aldrinum, en þó á varð­bergi.

„Spurningin er svo hvort það muni koma fram ný af­brigði sem verða allt öðru­vísi, mér finnst það mjög ó­lík­legt en við þurfum að vera á verði.“

Fréttablaðið fjallar nánar um málið, en hægt er að lesa um það hér.