Hljóðið í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni virðist vera nokkuð þungt þessa dagana, en eins og kunnugt er hefur smitum fjölgað að undanförnu. Þannig greindust 84 smit í gær og liggja 13 nú á sjúkrahúsi með veiruna.
Þórólfur ræddi stöðu mála í við fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis í hádeginu þar sem hann kvaðst óttast aukið álag á Landspítalann. Hann segir stöðuna alvarlega og virðist vera orðinn þreyttur á að segja sömu hlutina aftur og aftur. Þórólfur var nokkuð hvassari í máli en vant er.
„Ég er búinn að tala um þetta langan tíma og það er alltaf verið að spyrja mig um þetta sama. Ég er alltaf að segja og benda á það sama. Ýmist er það kallað hræðsluáróður eða maður sé ekki með hlutina alveg í réttu ljósi. Ég veit ekki hvað þarf til til að menn sjái þetta,“ sagði Þórólfur sem virðist sakna samstöðunnar. Hann gagnrýnir fjölmiðla, almenning, áhrifamenn og stjórnvöld í því samhengi.
„Meðan það er ekki samstaða um þetta og menn eru ekki að sjá að það þurfi að halda þessu á þessum nótum þá er mjög erfitt að eiga við þetta. Við erum varla fyrr búin að ná faraldrinum niður og ná góðri stöðu þá vilja menn hætta öllu og þá byrjar þessi leikur upp á nýtt. Staðan er bara þannig og það er bara spurning hvernig tökum viljum við ná á þessu.“