Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir harðar aðgerðir í sóttvarnamálum sem komið var á fyrir skömmu hafa skipt sköpum í að ná tökum á COVID-19 faraldrinum hér á landi. Hann vonast engu að síður til þess að hægt verði að slaka á þeim síðar í vikunni. Þetta sagði hann í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
„Ég held það að ef við hefðum ekki beitt þessum hörðu aðgerðum fyrir 2-3 vikum síðan þá hefðum við klárlega í mínum huga séð miklu meiri útbreiðslu en ég bind miklar vonir við það að í lok þessarar viku, þegar þessar þrjár vikur eru liðnar, og ný reglugerð þarf að taka við að þá getum við farið að slaka á og við höfum gert það. Það má ekki gleyma því það er ekki eins og við séum búin að vera með „lockdown“ allan tímann,“ sagði hann.
Hann segir rekstur sóttkvíarhótela þungan bagga á ríkinu, bæði sé það dýrt og krefjist auk þess mikils mannafla.
„Síðan er þetta náttúrulega spurningin, ef það kemur í ljós að kerfið bara ræður ekki við þetta þá hef ég sagt líka við stjórnvöld að við verðum að vera undir það búin að skoða það hvort við getum takmarkað fjölda fólk sem kemur hingað til lands. Getum við sett einhver mörk á það? Ég er svo sem ekki búinn að fá svör við því en við verðum að skoða þetta úr frá öllum hliðum,“ sagði Þórólfur.
Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af fyrirkomulagi vottorða frá ríkjum utan Schengen. „Ég hef í minnisblaði varað við því og sagt að mér finnst svolítið bratt í þetta farið og lagði til í minnisblaði að vottorð utan Schengen yrðu í byrjun einungis tekin gild frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Það var ekki farið eftir því þar sem það var ekki talið lagalega framkvæmanlegt að gera það,“ sagði Þórólfur enn fremur.
Bratt hafi verið farið í að opna landamærin, það krefjist viðamikilla aðgerða og fari svo að mikið af fólki taki að streyma til landsins gæti farið svo að ekki takist að ráða við það. „Við gætum ekki staðið við allar þessar skuldbindingar, allar þessar aðgerðir og það er það sem ég var aðallega smeykur við,“ sagði hann.