„Þegar hæstvirtur fjármálaráðherra var forsætisráðherra í stutta stund kom hann færandi hendi á HeForShe-viðburð í New York með bleika köku sem hann skreytti sjálfur,“ sagði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.
Þórhildur spurði þar Bjarna út í launamál hjúkrunarfræðinga, en eins og komið hefur fram máttu hjúkrunarfræðingar á Landspítalanum þola tekjuskerðingu um mánaðamótin vegna niðurfellingar svokallaðs vaktaálagsauka. Einn þessara hjúkrunarfræðinga, Sóley Halldórsdóttir, sem starfar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi, fékk til dæmis rúmum 40 þúsund krónum minna um þessi mánaðamót en áður.
Gerist á vakt Bjarna
Þórhildur vísaði í orð Bjarna þess efnis að hann vonaði að hans yrði minnst fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til að auka jafnrétti kynjanna.
„Hæstvirtur ráðherra hefur haft hvert tækifærið á fætur öðru til að sýna það í verki að hann meti störf kvenna raunverulega til jafns við karla. Hann hefur haft mörg ár til þess sem karl í valdastöðum en þrátt fyrir þau fögru fyrirheit, þrátt fyrir fagurgala um jöfn laun fyrir sambærilega vinnu og þrátt fyrir bleiku kökuskreytinguna er það á vakt hæstvirts ráðherra sem ekki nást kjarasamningar við hjúkrunarfræðinga. Það er á vakt hæstvirts ráðherra sem ljósmæður þurfa að sæta gerðardómi og það var líka á hans vakt sem fjármálaráðherra sem hjúkrunarfræðingar máttu þola gerðardóm í stað samninga fyrir fimm árum síðan,“ sagði Þórhildur og bætti við:
„Nú þegar kjarasamningar þessarar framlínusveitar eru enn og aftur lausir og hafa verið lausir í heilt ár svarar hæstv. ráðherra fyrirspurn hv. þm. Jóns Þórs Ólafssonar um daginn á þá leið að hann viti ekki hvað það kosti ríkissjóð að semja við hjúkrunarfræðinga. Hæstv. ráðherra sem fer með samningsumboð ríkisins í kjaramálum var sem sagt ekki einu sinni meðvitaður um hvað það kostar að ganga að kröfum þessarar grundvallarkvennastéttar í landinu. Það er auðvitað með ólíkindum.“
„Ósmekklegt“
Bjarni var ekki sáttur við þessi ummæli Þórhildar í ræðustól og lét hana vita af því.
„Ég ætla að láta vera að svara þessum ósmekklega útúrdúr um HeForShe-átakið sem ég og við í ríkisstjórninni höfum af fullum hug tekið þátt í. Það hófst reyndar í ríkisstjórnartíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Þar höfum við hreinlega lagt verulega mikið af mörkum með fjöldamörgum viðburðum og höfum fengið mikið hrós fyrir þannig að ég átta mig ekki á því hvaða erindi upprifjun á því átaki á inn í umræðuna í dag. Mér finnst þetta ósmekklegt,“ sagði hann.
Ljóst að um tímabundið átak var að ræða
Bjarni talaði síðan um kjarasamninga hjúkrunarfræðinga og benti á að ríkið hefði verið í viðræðum við hjúkrunarfræðinga frá því áður en samningar urðu lausir.
„Samningslotan sem núna stendur yfir hefur skilað verulega miklu, sömuleiðis sérstakt átak sem hefur verið í gangi á undanförnum árum á Landspítalanum. Þar hefur t.d. verið unnið í þremur mismunandi átökum á stofnuninni til að bæta starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga og gera starfið meira aðlaðandi. Það er að skila sér núna í því að í miðlægum nýjum kjarasamningum er að verða grundvallarbreyting á vaktafyrirkomulagi, ekki bara hjúkrunarfræðinga heldur annarra stétta. Í raun er komið samkomulag um þessa breytingu sem var megináhersluatriði hjúkrunarfræðinga í þessari kjaralotu á þeim tíma sem við erum hér að tala saman. Um þetta er komið samkomulag sem mun leiða til þess að vaktavinnufólk mun þurfa að vinna færri vinnustundir í hverri viku og vaktafyrirkomulagið verður tekið til endurskoðunar.“
Bjarni sagði einnig að farið hefði verið í ólík tímabundin átök á Landspítalanum sem Landspítalinn sem stofnun hefði borið ábyrgð á að framkvæma.
„Það sem er í umræðunni núna er átak sem við getum kallað sérstakt vaktaálag sem er að renna sitt skeið. Það hefur þær óheppilegu afleiðingar í tíma að það kemur út eins og launalækkun en allan tímann var ljóst að um var tímabundið átak var að ræða. Verkefnið núna er að búa þannig um kjarasamningagerðina að allir hjúkrunarfræðingar geti notið góðs af niðurstöðunni og fengið þegar upp er staðið betri kjör.“