„Kári lét mig sem sagt fá lykil að Íslenskri erfðagreiningu og ég mátti koma og fara þegar mér hentaði. Auk þess hafði ég aðgang að mötuneytinu, hvort sem það var að morgni til eða í hádeginu. Allt var þetta mér að kostnaðarlausu.“
Þetta segir rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson sem fyrir rúmum áratug sendi Kára Stefánssyni forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar tölvupóst og bar upp þá ósk að fá skrifstofuaðstöðu til að sinna skáldskap. Svaraði Kári að það væri sjálfsagt. Þá er Kári þekktur fyrir að láta gott af sér leiða án þess að grobba sig af því. Þorgrímur segir:
„Ég kynntist fjölda fólks í fyrirtækinu, man samt ekki eftir að hafa hitt kappann en rakst þó annað slagið á hann í ræktinni þar sem hann var að ibba gogg við hina og þessa á milli þess sem hann ,,tók á‘ðí“. Hann nýtur þess að ögra og vill þá að fólk ögri á móti.“
Í tvö til þrjú ár var Þorgrímur með aðstöðu í íslenskri erfiðagreiningu.
„Kári er höfðingi og einn mest spennandi persónuleiki okkar Íslendinga með sterkar skoðanir og hefur hugrekki til að viðra þær. Hann er með hjarta úr gulli og á hrós skilið,“ segir Þorgrímur og bætir við að lokum:
„Takk fyrir mig Kári og svo þú vitir það, er ,,samstarfi“ okkar alls ekki lokið!“