Í Facebook-hópnumLúsmý á Íslandi má finna ýmsar reynslusögur og ráðleggingar frá fólki sem hefur lent illa í lúsmýi.
Í dag greindi Þórður Ólafur frá sínum kynnum við lúsmýið en hann var bitinn hvorki meira né minni en níutíu sinnum um helgina.
„Við hjón lentum í því um á laugardagskvöldið að kynnast lúsmýi í stuði. Bitin hafa verið að birtast síðan og ég var búinn að telja upp í tæplega 90 hjá mér seinni partinn í gær þegar ég hætti að telja, en bitin eru mun fleiri. Konan mín er á svipuðum stað. Bitin hennar mynda stórar vessafylltar blöðrur - mín ekki, en mig klæjar sjáanlega meira en hana."
Hann segir þetta ekki vera neitt grín og að óþægindin sem fylgi séu slæm.
„Þetta er ekkert grín. Kláðinn og sviðinn sem fylgir er svo rosalegur að þegar verst var í gærkvöldi langaði mig helst til að flá mig með ostaskera. Það virkaði sem "þægilega lausnin" í þessum kringumstæðum. Ég velti því fyrir mér að sofa með vettlinga til þess að ég gæti ekki klórað mér í svefni."
Hann segir að hjóninn hafi látið reyna á ýmsilegar heimatilbúnar lækningar til að reyna að slá á sársaukann en ekkert hafi virkað. Þá hafi hann gefist upp í morgun og hringt í fagmenn í faginu og fengið lyf og smyrsli.
„Þetta virkar. Kláðinn er horfinn 3 tímum eftir inntöku og áburð. Roðinn í útbrotunum er núna að hverfa en smávægilegur bólguhnúður er eftir í bitunum. Í fyrsta skipti í á 3ja sólarhring get ég hugsað um eitthvað annað en kláða og sviða."
Að lokum ráðleggur hann fólki sem lendir í því sama að leita stax til læknis.
„Skilaboðin eru þessi: Ef þið rekist á þennan nýja landnema á Íslandi - í öllum bænum ekki eyða tíma í einhverjar „"kerlingarbókarremedíur" og skottulækningar, ef um mörg bit er að ræða."