Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, birti fróðlegan pistil í hinum skemmtilega Facebook-hópi Algjörlega óáhugaverðar stjórnmálaupplýsingar í dag. Í honum varpar hann ljósi á það hvaða þingmenn tala hraðast og hægast.
Það er skemmst frá því að segja að kollegi Björns Levís og samflokksmaður, Helgi Hrafn Gunnarsson, trónir á toppnum með 157 orð á mínútu að meðaltali í ræðum sínum.
„Næst í röðinni er Katrín Jakobsdóttir með 151 orð og í þriðja sæti er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir með 150.“
Björn Leví varpar svo ljósi á það hvaða þingmenn tala hægast:
„Frá hinum endanum er það Guðmundur Andri Thorsson með 101 orð á mínútu, Steinunn Þóra Árnadóttir með 102 orð og Ólafur Ísleifsson með 104.“
Björn bendir réttilega á að það sé auðvitað ekki magnið sem skiptir máli heldur innihaldið.
„Það er hægt að láta úr sér mörg orð án þess að samhengi þeirra sé innihaldsríkt og fá orð sem segja margt. Ég held að það megi til dæmis segja um þá sem eru á sitt hvorum enda þessa lista, Helga Hrafn og Guðmund Andra að þó fjöldi orða á mínútu sem þeir koma frá sér þá eru ræður þeirra ávallt innihaldsríkar.“
Einhverjir gætu haldið því fram að Helgi sé á toppnum á tveimur vígstöðvum, en eins og kunnugt er grínuðust margir með það að hann væri fljótasti þingmaðurinn þegar hann forðaði sér úr pontu þegar jarðskjálfti reið yfir höfuðborgarsvæðið í fyrra.