Spjót verkalýðshreyfingarinnar hafa að undanförnu staðið á Halldóri Benjamín Þorbergssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, að undanförnu. Í gær var þó greint frá því að samtökin ætluðu ekki að segja upp lífskjarasamningnum eftir að stjórnvöld kynntu aðgerðapakka sinn.
Síðustu daga hefur gengið manna á milli úrklippa úr DV frá árinu 1995, en þar má finna títtnefndan Halldór Benjamín í spurningu dagsins. Spurningin var einföld: Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór? Svar Halldórs Benjamíns, sem þarna var á 16. aldursári, var nokkuð gott.
„Ég ætla að verða milljónamæringur þegar ég verð stór.“
Svarið er skemmtilegt í ljósi þess að hlutverk Halldórs er að gæta hagsmuna fyrirtækjaeigenda, auðmanna þar á meðal, í deilum við verkalýðshreyfinguna.
Taka skal fram að þetta er ekki í fyrsta sinn sem umrædd úrklippa fer í dreifingu, en Kvennablaðið vakti athygli á henni í febrúar á síðasta ári.
Halldór er fæddur árið 1979 og er hagfræðingur að mennt. Hann hefur hann komið víða við á starfsferli sínum, meðal annars starfað sem hagfræðingur og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs og hjá Milestone svo eitthvað sé nefnt.
Hvort draumur Halldórs Benjamíns um að verða milljónamæringur hafi ræst – eða muni rætast – skal ósagt látið. Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar árið 2019 var Halldór þó með rétt rúmar þrjár milljónir í laun á mánuði árið 2018.