Þau fengu fálkaorðuna í dag - Sjáðu listann

Forseti Íslands sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Hér að neðan má sjá lista yfir orðuhafa dagsins, en fálkaorðan er jafnan veitt þann 17. júní og 1. janúar ár hvert.

  1. Dagný Kristjánsdóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á bókmenntum íslenskra kvenna og barnabókmenntum.
  2. Edda Jónsdóttir myndlistarmaður og galleristi, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu um kynningu og miðlun á íslenskri myndlist.
  3. Egill Eðvarðsson kvikmyndagerðarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvöðlastörf í dagskrárgerð fyrir sjónvarp og framlag til íslenskrar kvikmyndagerðar
  4. Felix Valsson svæfinga- og gjörgæslulæknir, Mosfellsbæ, riddarakross fyrir forystu við innleiðingu nýrrar tækni á sviði lækninga og framlag til björgunarstarfa.
  5. Jón Kristinn Cortez tónlistarkennari og kórstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til kóratónlistar og forystu um útgáfu sönglaga eftir íslensk tónskáld.
  6. Lára Stefánsdóttir skólameistari, Ólafsfirði, riddarakross fyrir frumkvæði og nýsköpun á vettvangi framhaldsskóla.
  7. Margrét Kristmannsdóttir framkvæmdastjóri og fyrrverandi varaformaður Samtaka atvinnulífsins, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til íslensks atvinnulífs og opinberrar umræðu.
  8. Már Guðmundsson hagfræðingur og fyrrverandi seðlabankastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í opinbera þágu.
  9. Ólafur Flóvenz jarðeðlisfræðingur og fyrrverandi forstjóri Íslenskra orkurannsókna, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi rannsókna á íslenskum orkuauðlindum.
  10. Ólafur Karl Nielsen fuglafræðingur og formaður Fuglaverndar, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á íslenskum fuglum, ekki síst fálka og rjúpu, og miðlun þekkingar á því sviði.
  11. Páll Halldórsson flugstjóri, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til björgunar mannslífa og brautryðjandastörf á vettvangi landgræðslu.
  12. Rakel Garðarsdóttir framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til að efla vitund um matarsóun, betri nýtingu og umhverfismál.
  13. Rósa Björg Jónsdóttir bókasafns- og upplýsingafræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir sjálfboðastörf í þágu Móðurmáls, samtaka um tvítyngi, við skráningu og miðlun barnabóka á öðrum tungumálum en íslensku.
  14. Þorbjörg Helgadóttir fyrrverandi orðabókarritstjóri við Árnasafn í Kaupmannahöfn, Nørre Broby í Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskra fræða.