Syndsamlega ljúffengt Spaghetti Bolognese að hætti Sjafnar

Þegar okkur langar að njóta þess að elda og snæða góðan heimilislegan kvöldverð þar sem bragðlaukarnir fá að njóta sín er þessi réttur skotheldur. Hér er erum við með Spaghetti Bolognese að hætti Sjafnar sem þar sem nostrað er við eldamennskuna og kjötsósan fær að malla í dágóðan tíma sem gefur réttinum enn betra bragð og mýkt. Tilvalið að eiga góðan dag saman í eldhúsinu á ítalska vísu og elda þennan. Hægt er að toppa máltíðina með því að bjóða uppá nýbakað brauð og ferskt salat að eigin vali með.

M&H Bolognese ítalskt

Spaghetti Bolognese að hætti Sjafnar

ólífuolía fyrir steikingu

2 stk. laukar, saxaðir

3-5 hvítlauksgeirar geirar eða 1-2 litlir hvítlaukar saxaðir, magn eftir smekk

2-3 stiklar sellerý, smátt skornir og sjóða í 2-3 mínútur fyrir notkun (má alveg sleppa, nota ekki alltaf)

2-3 gulrætur, smátt skornar

1 kg nautahakk

2 dósir/krukkur lífrænir tómatar

1 lítil krukka tómatpaste

1-2 tsk paprikukrydd

Svartur nýmalaður pipar eftir smekk

Tabosca dropar eftir smekk

1-2 dl vatn

Handfylli fersk basilka, gróft söxuð

Nokkrar greinar af basilku til skrauts

Parmesan ostur, til að rífa yfir þegar rétturinn er borinn fram

500 g af spaghetti að eigin vali (1 pakki)

Byrjið á því að steikja nautahakkið á pönnu án olíu. Setjið síðan ólífuolíu í góðan pott og setjið grænmetið í pottinn og steikið þar til það verður mjúkt. Síðan er tómötunum bætt út í ásamt steikta hakkinu. Kryddið með nýmöluðum svörtum pipar, paprikukryddi og tabosca dropum eftir smekk. 4-5 dropar af tabosca dropum er mjög fínt út í. Að lokum setjið ferska grófsaxaða basilku út í eftir smekk. Látið réttinn malla í dágóðan í um það bil 2 klukkustundir, má vera skemmur en þessi réttur verður betri því meiri tími hann fær að malla í pottinum. Gott er að hella örlitlu vatni út í af og til, meðan við leyfum réttinum að malla. Ef þið eigið gott rauðvínsglögg er upplagt að bæta því við og bragðið verður enn betra.

Þegar rétturinn er tilbúinn að, þá er upplagt að sjóða spaghetti-ið og muna að strá grófum saltflögum yfir spaghetti-ið meðan það er að sjóða. Það gerir gæfumuninn. Sjóðið spaghetti-ið eftir leiðbeiningum á pakkanum.

Spaghetti Bolognese er borið fram með rifnum parmesan og ferskri basilku. Einnig er afar ljúffengt að bera fram heimabakað ítalskt brauð eða súrdeigsbrauð ásamt fersku salati að eigin vali með réttinum. Njótið vel.

*Allt hráefnið sem þarf í þennan rétt fæst verslunum Bónus.

M&H Fersk basilka og hvítlaukur

Fersk basilka og hvítlaukur gefa tóninn.

M&H Basilkan

Basilkan á vel við ítalska matargerð og smellpassar í réttinn.