Svona er nýja Þjóðhátíðarlagið með Audda Blö

Auðunn Blöndal, eða Auddi Blö, eins og hann er kallaður gaf út í gær með þeim Agli Einarssyni og Steinda Jr. mýjasta þjóðhátíðarlagið sitt „Komið að því“.

Í viðtali í Fréttablaðinu í dag segir Auddi að þetta sé þeirra besta lag til þessa en Jóhanna Guðrún og Sverrir Bergmann syngja einnig í laginu.

Engin Þjóðhátíð fór fram í fyrra og segir Auddi frá því að á milli Þjóðhátíða tókst honum að verða tveggja barna faðir.

„En það er mjög fyndið að síðast þegar ég skemmti á Þjóðhátíð átti ég ekkert barn en núna er ég að skemmta með tvö. Það er smá munur.“

Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.

Fleiri fréttir