Sveinn Andri við Hannes: „Er frjáls­hyggju­prófessorinn á ríkis­jö­tunni kannski ekki með neina kúrsa eða nem­endur?“

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson og stjrónmálafræðiprófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson skiptust á orðum á Facebook um daginn. Rifrildi þeirra snerist aðallega um hvor eyddi meiri tíma á netinu og hvorum gengi betur í starfi.

Hannes birti öll orðaskiptin á bloggsíðu sinni í gær. Hér verða þau einnig birt í réttri röð:

Sveinn Andri:

  • Alþjóð veit að Hannes Hólmsteinn er í senn hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins og gjallarhorn flokksforystunnar. Þegar hann gjammar, er Sjálfstæðisflokkurinn að tjá sig. … Og ef það er einhver sem ekki er starfi sínu vaxinn er það háskólaprófessorinn sem virðist ekki hafa snefil af þekkingu um opinbera stjórnsýslu og málefni lögreglu.

Hannes:

  • Ég held þú ættir að eyða minni tíma hér á netinu og meira tíma til að sinna verkefnum þínum sem skiptaráðandi og umboðsmaður fólks, sem þarf á lögfræðiaðstoð að halda. Af fréttum að dæma mörg síðast liðin ár hefur þú því miður ekki gefið þér alveg nógu mikinn tíma í það.

Sveinn Andri:

  • Ég held að þú ættir að eyða minni tíma hér á netinu og einbeita þér að því að sinna öllum nemendunum þínum sem flykkjast í alla kúrsana þína í HÍ sem við skattgreiðendur borgum þér fyrir að sinna. Eða hvað? Er frjálshyggjuprófessorinn á ríkisjötunni kannski ekki með neina kúrsa eða nemendur? Það er kannski skýringin á hvað þú hefur mikinn tíma til að vera á netinu?

Hannes:

  • Þér til fróðleiks: Ég er nú ekki mikið á Netinu. Þú mátt ekki mæla þetta í tímanum, sem þú notar á Netinu. Ég þarf ekki eins mikinn tíma og þú: það er ekki eins langt í leiðslunum hjá mér og hjá þér, eins og skjólstæðingar þínir hafa því miður kynnst.

Sveinn Andri:

  • þú ert miklu meira á Netinu en ég. Ég þarf líka að afla mér tekna sjálfur á hinum frjálsa markaði þar sem samkeppni ríkir. Það eru ekki allir jafn heppnir eins og þú að vera áskrifendur að launatékkum frá okkur skattgreiðendum fyrir að gera ekki rassgat.

Hannes:

Sveinn Andri:

  • Þú ættir að hafa alla athyglina á því hvernig harðlínuöflin undir þinni andlegu forystu hafa leitt til þess að fagnað er og skálað þegar Sjálfstæðisflokkurinn mælist yfir 20% í skoðanakönnunum.

Hannes:

  • Núna er ég áhrifalaus, eins og vinstri menn þreytast ekki á að benda á. Þegar ég hafði einhver áhrif í stjórnmálum, var Sjálfstæðisflokkurinn með 35–40% atkvæða og alltaf í stjórn, samfellt í 17 ár. Þú ert sennilega enn lakari í að kenna fólki stjórnmálasögu en í því að gæta hagsmuna skjólstæðinga þinna. — Það er hins vegar athyglisvert og segir sína sögu, að þú skulir ekki treysta þér til að verja forystumann flokks þíns.

Sveinn Andri:

  • ef ég færi að kenna stjórnmálasögu fengi ég kannski einhverja nemendur - öfugt við þig. — það þarf nú ekki mikið að verja formann Viðreisnar. Þorgerður Katrín stendur sig vel. Það er merkileg vörnin sem þú tekur upp fyrir þinn formann - varnartaktíkin virðist ganga út á það að ræða ekkert um háttsemi formannsins; frekar verði að hengja sendiboðann sem vakti athygli á því að ráðherra hefði verið á vettvangi þar sem sóttvarnareglur voru brotnar.


Hannes:

  • Ég hef ekki undan neinu að kvarta hjá forsvarsmönnum Háskólans (rektor og sviðsforseta), framkoma þeirra hefur verið óaðfinnanleg, en það er meira en skjólstæðingar þínir geta sagt um þig.

Sveinn Andri:

  • mínir kúnnar eru hæstánægðir. Afkoma er bezti mælikvarðinn á ánægju viðskiptavina. Þannig eru nú fræðin. Þetta hefur þú aldrei reynt á eigin skinni enda lengst af verið í öruggu skjóli skattgreiðenda. Hvað eru margir nemendur að skrá sig á kúrsa hjá þér?

Hannes:

  • Þú afsannar það á hverjum degi hér á Snjáldru, að þér gangi vel í lífinu. Þá værir þú ekki í þeirri allsherjarfýlu út í lífið, sem raun ber vitni. Þú hefur skipað þér í raðir nöldurseggjanna, kverúlantanna, sem tala vel um öll lönd nema sitt eigið og kvarta öllum stundum undan því, sem lítið er og bliknar í samanburði við alla þá erfiðleika, sem sjá má annars staðar. Þú ert eins orðljótur um þína gömlu félaga í Sjálfstæðisflokknum og þú ert blíðmáll við dómarana, sem skammta lögmönnum verkefni.

Sveinn Andri:

  • þú verður að fyrirgefa síðbúið svar. Vinnan hefur forgang fram yfir að svara þér. Að vinna fyrir sér er auðvitað ekki konsept sem þú þekkir nema kannski af afspurn og Guði sé lof að þú kennir hvorki markaðs- né rekstrarfræði. En svona til að upplýsa þig þá ganga viðskipti vel þegar veltan er góð og hún skilar hagnaði. En auðvitað skilur þú þetta ekki, maðurinn sem er búinn að vera áratugum saman á spena hjá skattgreiðendum. Og varðandi lífið þá vona ég að ég endi ekki eins og þú; gamall og frústreraður bitur kall. Þú hefur masterað tvennt í gegnum tíðina og ert betri í því en flestir aðrir, en það er að koma þér í mjúkinn hjá peningaöflunum og að komast að ríkisspenann og hins vegar stendur þér enginn framar í geðillskulegum athugasemdum um samborgarana og dylgjum, þar sem sannleikurinn er fullkomið aukaatriði. Enginn er síðan orðljótari en þú um aðra; fáránlegar athugasemdir þínar um lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eru glöggt dæmi um það. En segðu mér hvað ertu að kenna marga kúrsa í Háskóla Íslands, hvar þú ert prófessor og hvað eru nemendur þínir margir? Og hvernig er tilfinningin fyrir jafn gallharðan frjálshyggjumann eins og þig að vera á framfæri skattgreiðenda?

Hannes:

  • Ég ætla ekki að fara í keppni við þig um það, hvor okkar sé geðverri eða orðljótari, því að þá keppni get ég ekki unnið.