„Það er grunnt á rasismann hjá dómsmálaráðherra og ríkisstjórninni,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður í færslu á Facebook síðu sinni. Hann segir það óásættanlegt að fólk af arabískum og afrískum uppruna sé ekki tekið jafn velkomið hérlendis og fólki frá Úkraínu.
„Það er hins vegar óásættanlegt að ekki skuli eiga það sama við um fólk af arabískum og afrískum uppruna sem flýr stríðsátök og afleiðingar þeirra í sínu heimalandi,“ segir hann.
Sveinn Andri gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir þá ákvörðun að vísa eigi á brott hátt í þrjú hundruð einstaklingum sem sótt hafa um alþjóðlega vernd hérlendis. Fólkið verður sent til Grikklands í flóttamannabúðir.
„Það er síðan sér kapítuli að vísa eigi úr landi 300 manns sem margir hverjir hafa dvalið hér langdvölum og aðlagast íslensku samfélagi þegar helsta hindrunin fyrir upprisu íslensks ferðamannaiðnaðarins er skortur á vinnuafli,“ segir Sveinn Andri.
Hann segir mannvonsku og heimsku vera aðalsmerki ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur.