Sveinn Andri ósáttur með ákæruna umtöluðu: „Þýðir ekki að segja bara að ákærði hafi lamið mann einhvern tímann“

Mennirnir tveir sem grunaðir eru í hryðjuverkamálinu svokallaða hafa verið ákærðir.

Samkvæmt Fréttablaðinu er annar þeirra ákærður fyrir tilraun til hryðjuverka og hinn fyrir hlutdeild að tilraun til hryðjuverka. Um er að ræða 100 grein a. almennra hegningarlaga. Auk þess eru þeir ákærðir fyrir vopnalagabrot og annar þeirra fyrir fíkniefnalagabrot.

Sveinn Andri Sveinsson, verjandi annars mannsins, er ekki sáttur með ákæruna og segir hana „vera mjög fljótandi“.

„Við verðum að skoða það vandlega hvort við krefjumst frávísunar,” segir Sveinn sem bendir á að sakborningar verði að geta varist ákærunni í sönnunarfærslu.

Þá segir hann að í ákærunni séu þessi meintu skipulögðu hryðjuverk ótilgreind. Ekki komi fram hverjum þau áttu að beinast gegn, eða hvenær þau hafi átt að vera framin.

„Það þýðir ekki að segja bara að ákærði hafi lamið mann einhvern tímann árið 2022. Menn verða að geta fest hendur á þetta,” segir Sveinn Andri.