Sumarlegir og gómsætir sælkera veganborgarar fyrir alla

Sumarið er tíminn fyrir grillið og það er gaman að geta boðið uppá fjölbreytt úrval af grilluðum kræsingum. Það þarf ekki alltaf að vera kjöt og hægt er að fá sér sælkeraborgara án kjöts. Hér er ein hugmynd af slíkum úr smiðju Berglindar Hreiðars sem heldur úti síðunni Gotteri og gersemar sem hentar öllum, hvort sem þeir eru vegan eða ekki.

Berglind hefur stundum áður deilt með okkur uppskriftum af kjötlausum máltíðum og þessi hér er ein af þeim girnilegu. „Hér er sumarlegur og gómsætur borgari á ferðinni. Það er nefnilega þannig að þó ákveðnar vörur flokkist sem vegan, glútein fríar, lágkolvetna eða hvað eina að það má sannarlega nota slík hráefni í „hefðbundna“ eldamennsku eins og hentar hverjum og einum,“segir Berglind.

„Þessi vegan buff frá Hälsans Kök voru dásamleg og ótrúlega þægilegt að geta tekið þau beint úr frystinum og skellt á grillið í nokkar mínútur. Ef þið viljið minnka notkun kjötafurða er þetta góð tilbreyting og ég hvet ykkur til að prófa,“segir Berglind og sjálf er hún sérstaklega hrifin af því að geta búið til sælkeraborgara án kjöts.

M&H Halsans-borgari-BH 2.jpg

Sælkera veganborgarar fyrir alla

Fyrir 4

4 Hälsans Kök buff

4 hamborgarabrauð

4 ostsneiðar

Hamborgarasósa

Kál

Tómatar

Paprika

Rauðlaukur

Pik-Nik kartöflustrá

  1. Grillið buffin samkvæmt leiðbeiningum á pakka ásamt því að hita brauðin á grillinu.
  2. Setjið ostsneið á hvert buff í lokin og takið þau síðan af þegar osturinn hefur bráðnað.
  3. Skerið niður allt grænmeti og raðið saman að vild.
  4. Njótið með kartöflustráum.

*Allt hráefnið fæst í Bónus

M&H Halsans-borgari-BH 3.jpg