Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins til áratuga, horfði á Silfrið á RÚV síðastliðinn sunnudag. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Styrmir gagnrýnir hversu áberandi enskuslettur voru meðal viðmælenda þáttarins í umfjöllun um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
„Þeim fylgir gjarnan setningin..."ef ég má sletta". Svarið er nei. Það getur ekki verið erfiðara fyrir Íslendinga að nota íslenzk orð frekar en ensk,“ segir Styrmir á bloggsíðu sinni og bætir við að samt virðist það færast í vöxt að viðmælendur RÚV noti enskuslettur í stað íslenskra orða. Af því tilefni spyr Styrmir:
„Er ekki kominn tími á að gera átak í að útrýma þessum "ensku-slettum"?“
Styrmir bendir á að slíkt átak hafi verið gert framan af 20. öld við að útrýma dönskuslettunum úr íslensku máli. „Nú er íslenzka orðið gangstétt notað um gangstéttir. Sú var tíðin að talað var um "fortov" en ekki gangstéttir,“ segir Styrmir og bætir við að RÚV eigi að ganga á undan með góðu fordæmi í þessum efnum.