Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi, meðal annars fyrir brot í nánu sambandi, brot gegn nálgunarbanni og brot gegn sóttvarnarlögum. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 5. apríl síðastliðnum.
Maðurinn var ákærður fyrir að veitast með ofbeldi að fyrrverandi maka sínum á tveggja mánaða tímabili frá janúar og fram í mars. Veitti hann konunni töluverða áverka, meðal annars kjálkabrot og opið sár í andliti. Þá var maðurinn ákærður fyrir ítrekuð brot gegn nálgunarbanni sem konan hafði fengið gegn honum.
Maðurinn var loks ákærður fyrir brot gegn sóttvarnarlögum, en hann yfirgaf sóttvarnarhús við Rauðarárstíg þann 16. mars síðastliðinn og fannst á krá skammt frá. Maðurinn átti að sæta tíu daga sóttkví í sóttvarnarhúsinu.
Maðurinn yfirgaf sóttvarnarhúsið öðru sinni þann 18. mars síðastliðinn en þann sama dag veittist hann með ofbeldi á sína fyrrverandi, meðal annars með þeim afleiðingum að hún kjálkabrotnaði og hlaut mar í andliti eins og fjallað er um hér að framan.
Maðurinn yfirgaf sóttvarnarhúsið í þriðja sinn þann 21. mars en var ekki handtekinn fyrr en 25. mars.
Í dómnum kemur fram að maðurinn hafi játað sök fyrir dómi, en hann hefur meðal annars fengið refsingar fyrir fíkniefnalagabrot, umferðarlagabrot og auðgunarbrot. Með brotum sínum nú rauf hann skilorð dóms sem hann hlaut í september í fyrra.
Maðurinn greindi frá því fyrir dómi að óregla og neysla hefði einkennt líf hans um nokkurt skeið og hann væri nú reiðubúinn að horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna.
„Kvaðst hann hafa notað tímann sem hann hefði setið í gæsluvarðhaldi til þess að nýta þau úrræði sem honum stæðu til boða í vistinni, svo sem geðheilsuteymi og nýlega hefði hann skráð sig í nám,“ segir í dómi héraðsdóms en litið var til þessara þátta við ákvörðun refsingar.