Óhætt er að segja að þáttur Kveiks um fátækt sem sýndur var á RÚV í gærkvöldi hafi vakið mikla athygli. Þar stigu nokkrir einstaklingar fram og lýstu því á opinskáan hátt hvernig er að vera fátækur á Íslandi.
Einn af viðmælendum Kveiks var Stephanie Rósa Bosma, einstæð móðir með eitt barn. Stephanie starfar við umönnun á hjúkrunarheimili og kvaðst hún hafa um 258 þúsund krónur til ráðstöfunar í hverjum mánuði. Eins og bent var á í þættinum er það undir lágtekjumörkum sem eru 311 þúsund krónur fyrir einstæða móður með eitt barn. Hún borgar 126 þúsund krónur í leigu og hefur því ekki mikið á milli handanna þegar búið er að standa skil á öllum nauðsynlegum útgjöldum.
Langar helst að gráta
Frásögn Stephanie vakti talsverða athygli enda brotnaði hún saman í viðtalinu. „Þetta gerir mig þunglynda, stressaða og kvíðna. Mig langar bara helst að gráta.“ Þegar Lára Ómarsdóttir, umsjónarmaður Kveiks, spurði hana hvað henni þætti erfiðast svaraði Stephanie: „Að geta ekki átt mat fyrir barnið sitt.“
Í slíkum tilvikum sagðist Stephanie til dæmis fara til móður sinnar í mat en hún er einnig láglaunakona. Í þættinum kom fram að Stephanie hefði farið að vinna tólf ára og nær ávallt þurft að borga allt sjálf, til dæmis skólagjöld, tölvur og síma svo fátt eitt sé nefnt. Hún sagði í þættinum að síðustu tvær vikur hvers mánaðar séu erfiðar því þá þurfi hún að telja hverja krónu.
Þakklát fyrir stuðninginn
Stephanie skrifaði færslu á Facebook eftir þátt Kveiks í gærkvöldi þar sem hún þakkaði fyrir þann mikla stuðning sem hún hefur fundið fyrir.
„Ég er mjög ánægð hve margir vilja hjálpa mér en ég vil ekki þiggja pening,“ sagði hún og hvatti fólk frekar til að styðja þá sem eru heimilislausir og þau samtök sem aðstoða fátæka einstaklinga. Þá sagðist hún óska þess að Bergþóra Pálsdóttir, eða Bebba, geti komist í íbúð þar sem hún hefur skjól.
Bergþóra sagði sína sögu í þættinum en hún er öryrki og býr í hjólhýsi í Laugardalnum. Fyrir það greiðir hún 43 þúsund krónur á mánuði. „Ég hef ekki efni á að leigja á frjálsum markaði. Það er voðalega einfalt,“ sagði hún.
Stephanie segir að þeir sem eru heimilislausir séu í miklu verri stöðu en hún. „Að vera heimilislaus er eitthvað sem ég get ekki ímyndað mér.“ Hún endar færsluna á ákalli til stjórnvalda
„Ég vil líka að fólkið sem stjórnar landinu fari að hugsa að við höfum það ekki “gott”. Það er allt að hækka; matur, frístundaheimili og leikskólagjöld á meðan launin eru á sama stað!“
Áhyggjur af skíðaferðinni
Eins og fyrr segir vakti þáttur Kveiks í gærkvöldi mikla athygli og voru margir sem tjáðu sig eftir hann. Drífa Snædal, forseti ASÍ, sagði til dæmis að það væri stór breyting frá því sem áður var að fólk sem lifir við fátækt neitar að skammast sín og krefst lágmarksvirðingar til að geta framfleytt sér og veitt börnum sínum gott líf.
„Veikindi og örorka er ávísun á fátækt hér á landi og jafnvel fólk sem vinnur fulla vinnu getur ekki lifað með reisn. Að halda fólki í fátækt er hættulegt fyrir einstaklinga og hættulegt fyrir samfélög. Á meðan er fólk sem lifir í allsnægtum og hefur aðallega áhyggjur af því hvort það þurfi að fresta skíðaferðinni út af faraldrinum. Það er vitlaust gefið en við höfum tækin til að breyta. Þau heita skattkerfi, auðlindagjöld og velferðarkerfi. Við þurfum að beita þeim kerfum miklu markvissari til að jafna stöðuna og ekki síst að tryggja að enginn lifi við fátækt í okkar ríka landi.“
Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, sagði að fátækt og afleiðingar hennar væru það ógeðslegasta sem til er. Það hafi verið átakanlegt að horfa á þáttinn. „Það er hægt að breyta þessu og búa til gott samfélag þar sem svona finnst ekki, enginn á að þurfa að búa við svona aðstæður.“
Þá sagði Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, að þátturinn ætti að vera skylduáhorf á hverju einasta heimili.
„Ég er þess fullviss að það er fullt af fólki sem veit ekkert um þær aðstæður sem þar voru sýndar, aðstæður okkar samborgara,“ sagði hún og bætti við að við ættum að gera betur.
Þáttur Kveiks um fátækt í heild sinni.