Stefán Hrafn Hagalín, forstöðumaður samskipta og markaðsmála hjá Háskólanum í Reykjavík, stökk til um helgina með litlum fyrirvara.
Hann flautar árlega um 100 fótboltaleiki á ári í elstu unglingaflokkunum og er landsdómari í þokkalegri æfingu en hann var ekki undirbúinn undir það sem æskuvinur hans öskraði á hann úr stúkunni.
„Stökk til áðan með litlum fyrirvara og flautaði jafnteflisleik tveggja hörkuliða. Báðir þjálfarar eftir leik: Takk fyrir vel dæmdan leik. Allir leikmenn: Takk fyrir leikinn. Æskuvinur minn og fótboltapabbi öskrandi: TAKTU HAUSINN ÚR RASSGATINU Á ÞÉR, ÞÚ VELDUR ÞESSU EKKI, STEFÁN!,“ skrifar Stefán á Twitter.
Ónefndur twitter aðgangur svarar Stefáni og bætir hann við: „ En já, Lalla vini mínum leið ekki nógu vel í kvöld. Það er eins og það er. Aldrei að vita nema maður taki hausinn úr rassgatinu við tækifæri út af þessari góðu hvatningu!“ skrifar Stefán.
Stökk til áðan með litlum fyrirvara og flautaði jafnteflisleik tveggja hörkuliða. Báðir þjálfarar eftir leik: Takk fyrir vel dæmdan leik. Allir leikmenn: Takk fyrir leikinn. Æskuvinur minn og fótboltapabbi öskrandi: TAKTU HAUSINN ÚR RASSGATINU Á ÞÉR, ÞÚ VELDUR ÞESSU EKKI, STEFÁN!
— Stefán Hrafn Hagalín (@StefanHagalin) August 14, 2022