Stef­án gengst við of­beld­in­u: „Ég iðr­ast inn­i­leg­a fyr­ir það sem ég gerð­i“

Stefán Hannes­son fyrrum með­limur í Gagna­magninu gengst við því að hafa beitt fyrr­verandi kærustuna sína of­beldi. Stefán keppti með Daða og Gagnamagninu í Eurovision í Rotterdam í fyrra en sagði sig nýlega úr hljóm­sveitinni eftir að á­sakanirnar voru gerðar opin­berar.

Hann birti færslu á Twitter-síðu sinni í dag þar sem hann viðurkennir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann hafi beitt of­beldi í sam­bandi og segist „iðrast inni­lega fyrir gjörðir sínar“.

„Árið 2013 beitti ég þá­verandi kærustu mína of­beldi og hefur hún nú stigið fram og sagt frá. Því miður var þetta ekki í fyrsta skipti sem ég varð upp­vís að slíku of­beldi en það átti sér einnig stað í mínu fyrsta sam­bandi,“ segir Stefán og bætir við að hann hafi leitað sér hjálpar til að takast á við vandann.

„Ég iðrast inni­lega fyrir það sem ég gerði á hverjum degi og mun alltaf gera. Ég hef leitað mér hjálpar hjá sál­fræðingi til að horfast í augu við þetta og vinna úr þessu.“

Þá segist hann hafa til­kynnt með­limum Gagna­magnsins í fyrra að hann myndi ekki koma fram með þeim ef þau yrðu beðin um það í fram­tíðinni.

„Á þeim tíma hefði ég átt að til­kynna það opin­ber­lega. Á­byrgðin er mín, skömmin er mín,“ segir Stefán.