Starfólk þurfti áfallahjálp eftir að hafa sinnt þurftafrekum Íslendingum

Egill Páll Egilsson segir þjónustufólk óttast dónalega Íslendinga sem ferðast innanlands í pistli sem hann skrifaði í Vikublaðinu.

Egill segir ferðasumrinu 2020 hafa verið bjargað af ferðaþyrstum Íslendingum en að enginn þori að tala um hvernig téðir Íslendingar hafi hagað sér innanlands.

„Svo virðist nefnilega vera sem of stór hluti Íslendinga gleymi öllum mannasiðum um leið og það setur niður í ferðatösku.“ Starfsfólkið sem hafi haft það hlutverk að þjónusta þurftafreka Íslendinga hafi aldrei kynnst öðru eins álagi eins og síðasta sumar.

„Það er með ólíkindum framkoma sumra íslenskar ferðamanna. Yfirmenn hótela og veitingastaða þurftu ítrekað að veita grátandi starfsfólki sínu áfallahjálp eftir vaktir, sérstaklega um helgar.“

Niðurlægð fyrir að tala ekki íslensku

Framkoman hafi verið einna verst í garð erlends starfsfólks. „Dæmi voru um að Íslendingar hreiðruðu um sig á hótellobbíum með sínar eigin áfengisbyrgðir, djömmuðu fram í roða; og virtu að vettugi öll tilmæli starfsfólks.“

Þetta hafi einnig átt sér stað á bensínstöðvum og bakaríum þar sem starfsfólk þurfti að sögn Egils að taka við skömmum frá frekum íslenskum ferðamönnum ef þjónusta sem þeir óskuðu eftir var ekki í boði.“ Þá var fólk sem ekki talaði fullkomna íslensku ítrekað niðurlægt af téðum Íslendingum.

„Það að greiða fyrir þjónustu gefur ekki frípassa á að haga sér eins og fífl. Virðing og kurteisi kostar ekkert en hagnaðurinn er ómetanlegur. Verum góð við hvor annað.“