Staðfest smit á ritstjórn DV - Allir nema einn í sóttkví

Eitt staðfest COVID-19 smit hefur komið upp innan ritstjórnar DV en um er að ræða konu sem gegnir hlutastarfi á ritstjórn DV. Þetta kemur fram í frétt DV um málið.

Konan sótti ritstjórnarfund með blaðamönnum DV síðastliðinn þriðjudag og hefur öll ritstjórnin, að undanteknum einum blaðamanni sem var í fríi umræddan dag, nú verið send heim.

Sóttvarnir á vinnusvæði Torgs, sem rekur DV, Fréttablaðið og Hringbraut, hafa verið hertar en aðrir starfsmenn DV eða Torgs hafa ekki fundið fyrir einkennum.

Blaðamenn DV munu sinna störfum sínum heima og hefur atvikið ekki áhrif á fréttaflutning dv.is að því er segir í frétt miðilsins um málið og kemur nýtt tölublað DV út á morgun.