Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG segist ekki hafa ákveðið hvort hún muni bjóða sig aftur fram til Alþingis að ári liðnu.
Hún sagði sig fyrir nokkrum dögum úr þingflokki VG og úr flokknum líka, þar sem hún hefur verið í trúnaðarstörfum undanfarin sjö ár og þingmaður í 4 ár. Hún segir um úrsögn sína, að úrslitaatriðið hefði verið meðferð hælisleitenda og þá síðast mál Kehdr fjölskyldunnar frá Egyptalandi sem vísa á úr landi.
Annað sem fyllti mælinn er meðhöndlun loftslagmála hjá ríkisstjórninni. Rósa Björk er í viðtali í þættinum 21 hjá Lindu Blöndal á Hringbraut.
Rósa situr í tveimur nefndum á vegum VG á Alþingi; hún er varaformaður utanríkismálanefndar og situr í atvinnuveganefnd þar að auki. Staða hennar þar er óljós eins og sakir standa. Hún mun þó halda áfram sem varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins og sem formaður Íslandsdeildar sama þings. Hvort hún haldi sætum sínum í þingnefndum Alþingis segir Rósa Björk að verði að koma í ljós, ekkert sér öruggt.