Gunnar Smári Egilsson og félagar í Sósíalistaflokknum munu fá 120 milljónir frá ríkinu næstu fjögur árin. Gunnar Smári upplýsti um þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Hann segist því ekki vera svekktur yfir því að hafa ekki komist á þing. „Síðan hádegið daginn eftir fattaði ég að þetta var sigur,“ segir Gunnar Smári. Baráttan sé ekki háð inni á þingi.
Markmiðið sé að endurreisa verkalýðshreyfinguna. Hann segir Framsókn ekki hafa hugmynd um hvað hún ætli að gera í stóru málunum.
Gunnar Smári segir Sósíalista ekki ætla að pakka saman með 4,1 prósent fylgi. Það hefði skilað þeim þingsætum í öllum nágrannaríkjum.
„Nú fáum við hluta af peningunum. 30 milljónir á ári sem við lýstum því yfir hvað við ætlum að gera við. Við ætlum að byggja upp fjölmiðla, til þess að styrkja rödd hinna fátæku og kúguðu,“ segir Gunnar Smári. Um verður að ræða annarskonar fjölmiðlun.
„Til þess að það verði umfjöllun og umræða um þessi málefni, með þessu fólki og á forsendum þessa fólks.“