Sonur Einars og Millu skírður á 17. júní: Einar stakk upp á þessu nafni en Milla er efins

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík greindi frá því á Twitter síðu sinni fyrr í kvöld að hann hefði stungið upp á nafninu Borgar Búi Einarsson fyrir son sinn sem verður skírður 17. júní næstkomandi, Milla Ósk, eiginkona hans og aðstoðarmaður ráðherra, var víst ekki hrifin af hugmyndinni. „Eða réttara sagt andsnúin hugmyndinni. Sem er óskiljanlegt,“ skrifar Einar.

Einar segist einnig hafa stungið upp á Borgar Línus en sú hugmynd hafi einnig verið felld af konu hans.

„Ef hann hefði verið stúlka þá hefði Elínborg Ólína komið til álita. Kölluð Borga Lína. En svona er lífið,“ skrifar Einar.