Verkalýðsforinginn Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gladdist mjög í morgun er hún sá að ný auglýsing var komin á strætóskýli nokkuð. Í stað kosningaauglýsingar fyrir Sjálfstæðisflokkinn með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra mætti henni auglýsing frá fataversluninni Lindex.
„Ég hef aldrei verið jafn ánægð með að láta mæðulega unga konu reyna að selja mér eitthvað sem mig vantar ekki. Bókstaflega ALLT er betra en Guðlaugur Þór!“ skrifar Sólveig á Facebook.
„Ég vona að þetta sé í síðasta skipti sem við þurfum að láta þetta sjálhverfa fólk með löskuðu siðferðisáttavitana gubba á okkur orðasalati útum alla borg. Í nafni móðurgyðjunnar, hættum að gefa þeim peninginn okkar til að eyða í lyga-áróður. Sýnum smá sjálfsvirðingu!
Niður með öll orðasalöt íhaldsins og framreiðslufólk þeirra! Verum sterk; just say NO!“ skrifar Sólveig að lokum.