„Munum: Aldrei gefast upp! Þetta fólk er mín stærsta fyrirmynd í dag. Hugrökk og seig. Megi þau hafa það sem allra best á Íslandi!“
Þetta segir Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, um þau tíðindi að egypsku Kedhr-fjölskyldunni hafi verið veitt dvalarleyfi. Til stóð að vísa fjölskyldunni úr landi í síðustu viku en nú, rúmri viku eftir að fjölskyldan fór í felur, er hún komin með dvalarleyfi.
Magnús D. Norðdahl, lögmaður fjölskyldunnar, sagði í tilkynningu sem hann sendi fjölmiðlum að um væri að ræða sigur fyrir íslenskt samfélag.
Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk, gat varla lýst ánægju sinni með tíðindin. Hún sagði á Facebook: „Réttlætið og samstaðan hefur sigrað! TAKK ÖLL! Ég er orðlaus!“